Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

3 days ago

Víða var komið við í Besta sætinu þennan ágæta föstudag. Stefán Árni dreif sig beint í sumarfrí eftir þátt dagsins.
Þeir Valur Páll Eiríksson, Andri Broddason og Stefán Árni Pálsson fóru yfir íþróttamál dagsins í þættinum en Stefán var allur á iði þar sem hann er á leið í sumarfrí.
Erik Sandberg var til umræðu en hann er félagi Erling Haaland, framherja norska landsliðsins, og þeir gerðu saman lag í unglingalandsliðsverkefni fyrir rúmum áratug. Það lag er í dag á toppi allra vinsældalista í Noregi þar sem er HM-fár. Rætt verður við Erik í Sportpakkanum á Sýn í kvöld.
Ótrúleg fimma Ídu Marín Hermannsdóttur fyrir FH og óvænt tap Breiðabliks í Bestu deild kvenna var til umræðu.
Þá var HM rætt í þaula og komandi 8-liða úrslit, sem og leikur gærkvöldsins. Þar kemur fyrir furðuleg pöntun Frakka á knæpu yfir leiknum.
Stefán Árni lauk þættinum svo á svoleiðis fúkyrðum um Manchester City að líklega sýður á Sigurði Helgasyni.
Þáttinn má heyra í spilaranum og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

4 days ago

Jólin í ár verða fullkomin fyrir íþróttaáhugafólk eins og rætt var um í Besta sætinu í dag. Stjarnan og Vestri eiga ansi ólík verk fyrir höndum í Evrópukeppnum í kvöld og Besta deild kvenna hefst að nýju eftir langt hlé. Þá eru 8-liða úrslitin að hefjast á HM.

5 days ago

Leikmenn Víkings eru látnir spila á „ónýtum og hættulegum“ gervigrasvelli en mega vera stoltir af frábærum 1-0 sigri gegn ungversku meisturunum. Átta liða úrslitin eru klár á HM og Blikar búnir að tryggja sér mikinn liðsstyrk.

6 days ago

Það var af nægu að taka í Besta sætinu eftir líflegan dag á HM í fótbolta, þar sem Cristiano Ronaldo stimplaði sig út og Belgar rúlluðu yfir Bandaríkin, og að lokinni 13. umferð Bestu deildar karla. Talið barst þó einnig að ýmsu öðru.

7 days ago

Í Besta sætinu sögðu menn sína skoðun á fordæmalausri afléttingu leikbanns Folarin Balogun sem fær að spila fyrir Bandaríkin gegn Belgíu á HM í nótt. Farið var yfir torsóttan sigur Englands við aðstæður sem ekki allir skilja hve erfiðar voru, og sigur Noregs gegn óspennandi liði Brasilíu. Golf, Besta deildin og leið Íslands á HM í körfubolta var sömuleiðis á meðal þess sem rætt var um á þessum fallega mánudegi.

Friday Jul 03, 2026

Tveir góðir gestir settust í Besta sætið á þessum fína föstudegi. Kolbeinn Tumi Daðason, ritstjóri fréttastofu Sýnar, og Magnús Jochum Pálsson, menningarblaðamaður á Sýn, ræddu íþróttamál dagsins við Val Pál Eiríksson.
Ótrúlegur leikur Þórs og KR á Akureyri var til umræðu sem og sigur Víkings á KA. Landsleikur gærkvöldsins við Ítala bar á góma og samhliða því feimni Íslendinga við þjóðsöng okkar, Lofsönginn.
Einnig var snert á HM í fótbolta þar sem skrautlegur leikur fór fram milli Króatíu og Portúgals. VAR-dómgæsla og vatnspásur báru á góma í því samhengi.
Hlýða má á þáttinn í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

2. júlí - Þýskt þrot

Thursday Jul 02, 2026

Thursday Jul 02, 2026

Farið var um víðan völl í Besta sætinu í dag. Birgir Olgeirsson, fréttamaður á Sýn, var sérstakur gestur þar sem rætt var um HM, England, Þýskaland, NBA, Bestu deildina og landsleik kvöldsins.

Wednesday Jul 01, 2026

HM var mikið til umræðu í Besta sætinu í dag. Besta deildin kom við sögu sem og stór tíðindi úr Bónus deildinni í körfubolta.
Valur Páll Eiríksson, Stefán Árni Pálsson og Andri Broddason ræddu málin í Besta sætinu í dag.
HM-leikir gærkvöldsins voru til umræðu sem og þeir sem fram undan eru í dag. Tíðindi bárust úr Garðabæ í dag hvað þjálfaramálin í fótboltanum varðar og einnig bárust þjálfaratíðindi úr Grindavík þar sem Lárus Jónsson er tekinn við sem aðstoðarþjálfari í körfuboltanum.
Hlýða má á þátt dagsins í spilaranum sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Monday Jun 29, 2026

Í Besta sætinu í dag er farið yfir stórtíðindin af Hlíðarenda. Hermann Hreiðarsson hefur verið látinn fara sem þjálfari karlaliðs Vals í fótbolta og nú þegar er eftirmaður hans fundinn. Fleiri tíðindi úr Bestu deildinni, mikilvægt verkefni karlalandsliðsins í körfubolta sem og HM þar sem að útsláttarkeppnin er hafin. Allt saman í Besta sætinu.

Friday Jun 26, 2026

Það var við hæfi að opna þáttinn á slagara með Sálinni, Stebbi Hilmars sextugur og gír í mönnum. Nóg að ræða í dag. Er rígurinn milli Blika og Víkinga dauður? Víkingar, í hægagangi völtuðu yfir Blikana í gær og liðin mætast aftur á sunnudaginn. Línur eru teknar að skýrast á HM og styttist í útsláttarkeppnina. Umferðin framundan í Bestu deildinni, Formúla 1, glæný tíðindi af landsliðsmanni Íslands og ég veit ekki hvað og hvað. Skylduhlustun

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125