Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

Friday May 22, 2026

Það var af nægu að taka á þessum glimrandi fína föstudegi þar sem tíðindi hrönnuðust inn. Pep Guardiola, Michael Carrick, Alfreð Gíslason og Haukur Þrastarson meðal annars til umræðu, sem og lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Þá eru fimm leikir á dagskrá í Bestu deild karla í kvöld.

Thursday May 21, 2026

Landsliðshópur, óvænt skipti landsliðsmanns, Besta deildin og Evrópu-Emery er meðal þess sem er til umræðu í Besta sætinu þennan fimmtudaginn.

20.maí - Til hamingju Arsenal!

Wednesday May 20, 2026

Wednesday May 20, 2026

Í Besta sætinu í dag verður farið yfir stóru tíðindi gærkvöldsins þegar að Arsenal varð Englandsmeistari í fyrsta sinn í tuttugu og tvö ár eftir að Manchester City skrikaði fótur. Baráttan er hörð í deildinni neðar í töflunni fyrir lokaumferð helgarinnar.

Tuesday May 19, 2026

Ingibergur Þór Jónasson hefur verið formaður körfuknattleiksdeildar Grindavíkur í gegnum ólgusjó undanfarin ár. Eldsumbrot, rýming og hætta á niðurlagningu körfuboltaliðs Grindavíkur hafa verið meðal áskorana. Liðið varð Íslandsmeistari eftir hafa verið nærri titli undanfarin ár og gleðin ósvikin. Hann ræddi undanfara titilsins við Val Pál Eiríksson í Besta sætinu.

Tuesday May 19, 2026

Jeremy Pargo vann Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta fyrir Grindavík með ótrúlegri körfuboltasýningu sem seint mun gleymast. Baldur Ragnarsson fór frá Stjörnunni yfir á Álftanes og svo er dramatískt kvöld fram undan í enska boltanum.

Monday May 18, 2026

Grindavík fær annað tækifæri til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla í kvöld. Það verður heitt og það verða læti. Arsenal getur að sama skapi sett marga fingur á Englandsbikarinn með sigri á Burnley í kvöld. Svo var Besta deild karla á fullu í gær og margt að gerast.

Friday May 15, 2026

Grindavík getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri gegn Tindastóli í kvöld og Besta sætið býst við miklum látum.
 
Forkólfar FIBA Europa fá að kynnast því besta, og mögulega því versta, sem íslenskur körfubolti hefur upp á að bjóða í kvöld. Mun Grindavík gera það sem Njarðvíkingum mistókst í gærkvöldi, tryggja titilinn?
FA bikarinn fer svo á loft á morgun. Einhvern veginn, eins og alltaf, er Chelsea í séns en Manchester City verður að teljast sigurstranglegri eftir að hafa hvílt allar helstu stórskytturnar.
Spennan magnast í enska boltanum og heil umferð fer fram í Bestu deild karla. Að ógleymdu PGA meistaramótinu, þar sem Rory McIlroy hefur látið kosta Nike margar milljónir dollara.

Wednesday May 13, 2026

DeAndre Kane gaf Stólunum puttann á Króknum og allt er brjálað. Strákarnir okkar unnu í Egyptalandi og Arnar Gunnlaugs valdi Ögmund Kristins í landsliðið. Hann reyndar valdi tvo hópa í dag. 

Tuesday May 12, 2026

Rúnar Ingi Erlingsson á ekki von á góðu í ferðalagi dagsins á Krókinn enda stendur til að kveikja í einni af hans frægu tréslaufum. Einnig er rennt yfir handbolta kvöldsins en Valur getur orðið Íslandsmeistari. Njarðvík er í toppstöðu í úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna og Tottenham er enn í kröppum dansi í enska boltanum.

Monday May 11, 2026

VAR-dómurinn í leik West Ham og Arsenal er á vörum allra í dag. Það verður líklega eitthvað rifist um hann næstu vikurnar. Bakgarðshlaupið ótrúlega fór fram um helgina. Það var ýmislegt áhugavert á ársþingi HSÍ og Baldur Þór Ragnarsson hætti með Stjörnuna í miðjum þætti. BOMBA! Annar leikurinn í úrslitum Bónus kvenna fer fram í kvöld og þá er einnig spilað í Bestu deild kvenna. Svo er mikið undir hjá Tottenham í enska boltanum.

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125