Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

Friday Mar 13, 2026

Sólveig Jóhannesdóttir Larsen tilkynnti á samfélagsmiðlum í vikunni að fótboltaferli hennar væri lokið þrátt fyrir aðeins 25 ára aldur. Ferlinum lauk þó í raun fyrir rúmum þremur árum síðan en hún hefur ekki getað spilað eftir að hafa orðið fyrir mjaðmarmeiðslum í Svíþjóð. Hún var þá nýkomin út í atvinnumennsku eftir að hafa unnið bæði Íslands- og bikarmeistaratitilinn með Val 2022.
Atvinnumannadraumurinn varð því að martröð með meðfylgjandi andlegum þyngslum og ,eiðsli sem áttu þá að vara í örfáar vikur halda henni enn utan vallar og hafa raunar áhrif á daglegt líf hennar. Sólveig hefur ekki getað hlaupið síðan og glímir við verki dagsdaglega.
Að ljúka ferlinum fylgir sorg en einnig léttir þar sem hún horfir nú til framtíðar án þess að hafa bolta við tærnar. Hún fær bacherlorsgráðu í stjórnmálafræði í vor, stefnir í mastersnám erlendis í kjölfarið og fann sér nýtt lið þar sem hún er á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi fyrir komandi sveitastjórnarkosningar.
Valur Páll Eiríksson settist niður með Sólveigu og ræddi undanfarin þrjú ár, þroskann sem þeim fylgdi og það sem fram undan er.

Besta sætið - 13.mars

Friday Mar 13, 2026

Friday Mar 13, 2026

Það var nóg um að ræða í Besta sætinu í dag. KA-menn opnuðu veskið til þess að fá Danijel Dejan Djuric til sín úr atvinnumennsku, Bónus deildin bauð upp á dramatík og deildarmeistarar gætu verið krýndir í kvöld. Þá er áhugaverð helgi framundan í enska boltanum.

Besta sætið - 12. mars

Thursday Mar 12, 2026

Thursday Mar 12, 2026

Brjálæði í Meistaradeildinni og hitað upp fyrir lokaumferðina í Olís-deild karla og einnig fyrir stóra umferð í Bónus-deild karla.

Besta sætið - 11. mars

Wednesday Mar 11, 2026

Wednesday Mar 11, 2026

Farið yfir sirkusinn hjá Tottenham og sömuleiðis í Boganum þar sem enginn virðist þora að spila með sitt besta lið. Einnig er spáð í spilin fyrir risakvöld í Meistaradeildinni.

Besta sætið - 10. mars

Tuesday Mar 10, 2026

Tuesday Mar 10, 2026

Farið yfir málefni handboltalandsliðsins og stöðu landsliðsþjálfarans, Snorra Steins Guðjónssonar, sem er ekki búinn að endursemja við HSÍ. Einnig er rýnt í spilin fyrir 16-liða úrslitin í Meistaradeild Evrópu sem hefjast í kvöld.

Sunday Feb 01, 2026

Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu og gerðu upp tapið gegn Króatíu í leiknum um bronsið á EM í dag. Liðið hafnaði í 4.sæti mótsins en framtíðin lítur vel út fyrir liðið.

Friday Jan 30, 2026

Einar Jónsson og Rúnar Kárason gera upp undanúrslitaleik Íslands og Danmerkur á EM í handbolta með Aroni Guðmundssyni. Þriggja marka tap raunin 31-28 og draumur um gull úr sögunni en hetjuleg barátta stendur upp úr. Við tökum Danina næst, first nælum við í bronsið á sunnudaginn.

Wednesday Jan 28, 2026

Jóhann Gunnar Einarsson, Einar Jónsson og Stefán Árni Pálsson gerðu upp stórsigur Íslands og Slóvenum sem gerði það að verkum að Ísland er komið í undanúrslit á EM í fyrsta sinn í 16 ár. Magnaðar árangur. 

Tuesday Jan 27, 2026

Þeir Sebastian Alexandersson og Rúnar Kárason gerðu upp sárt jafntefli Íslands gegn Sviss í milliriðli á EM í handbolta í dag. Liðið skoraði 38 mörk en fékk á sig 38. Möguleikinn á undanúrslitasæti varð lítill eftir úrslitin. 

Sunday Jan 25, 2026

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Rúnar Kárason, fyrrverandi landsliðsmenn fara yfir stórbrotna frammistöðu Strákanna okkar gegn Svíum í milliriðlum á EM í handbolta með Aroni Guðmundssyni. Átta mark sigur staðreynd, 35-27, draumurinn um undanúrslit lifir!

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125