Episodes

Monday Jun 08, 2026
Monday Jun 08, 2026
Hjartaáfall Christian Eriksen, landsliðin okkar að mæta heimsmeisturum og stórmannlegir Víkingar framlengja við Ingvar er helst í brennidepli í þætti dagsins.

Friday Jun 05, 2026
Friday Jun 05, 2026
Það er frábær föstudagur í Besta sætinu. Landsliðskona snýr heim, stelpurnar okkar eiga stóran leik, Knicksari rífur kjaft um fótbolta og vera má að Ögmundur Kristinsson semji við Víking í dag. Þá eru æfingaleikir um helgina þar sem Cole Palmer-laust Englandslið hitar upp fyrir HM. Palmer er andlit Nike fyrir mót sem hann tekur ekki þátt í. Svo er spurning hvort Arnar Gunnlaugsson hafi náð að lækka forgjöfina í golfi í Japan en hann er mættur með A-landsliði karla til Bandaríkjanna þar sem fram undan er leikur við heimsmeistara Argentínu.

Thursday Jun 04, 2026
Thursday Jun 04, 2026
Þrátt fyrir að komið sé hásumar er nóg að frétta úr heimi íþróttanna. Stór tíðindi að berast af kvennaliði Hauka sem er að fá sína bestu dóttur aftur heim, Sara Björk Gunnarsdóttir ein sú besta í sögu Íslands frá upphafi að stimpla sig inn í íslenska boltann. Ögmundur Kristinsson á leið í Víkina, Kane laus úr fangelsi og ég veit ekki hvað og hvað. Alvöru yfirferð í Besta sætinu í dag.

Wednesday Jun 03, 2026
Wednesday Jun 03, 2026
Misgóðar klippingar, nýr stjóri Liverpool og úrslitaeinvígi NBA eru á meðal umfjöllunarefna í Besta sætinu í dag.

Tuesday Jun 02, 2026
Tuesday Jun 02, 2026
Freyr Alexandersson lærði ekki af mistökum annarra íslenskra þjálfara og hefur verið látinn fara frá Brann. Hvað verður um Alfreð Finnbogason hjá Rosenborg?
Einhvern veginn tókst Noregi að taka yfir þátt dagsins í Besta sætinu. Stórliðin þar í landi, með Íslendinga í brennidepli, hafa tekið risaákvarðanir síðastliðinn sólarhring.
Svo sendu Norðmenn frá sér alvöru yfirlýsingu með sigrinum gegn Svíum í gær.
Þetta og margt fleira var rætt í þætti dagsins í Besta sætinu.

Monday Jun 01, 2026
Monday Jun 01, 2026
Besta deild karla, stjóraskipti Liverpool, Lengjudeildin, blóðbaðið hjá Kolla box og fleira til í þætti dagsins.

Friday May 29, 2026
Friday May 29, 2026
Það er risa helgi fram undan í boltanum hér heima og úti. Heil umferð fer fram í bæði Bestu deild karla og kvenna. Úrslit eru í Meistaradeild Evrópu og landsleikur í Japan.
Þá skrifaði Óskar Hrafn Þorvaldsson undir nýjan samning í Vesturbæ og gjaldkeri liðsins hlær alla leið í bankann.

Thursday May 28, 2026
Thursday May 28, 2026
Aron Pálmarsson er orðinn aðalþjálfari FH og er rennt ítarlega yfir þessi merkilegu tíðindi í Besta sætinu í dag. Svo er staðan í hinni skemmtilegu Lengjudeild karla krufin aðeins.

Wednesday May 27, 2026
Wednesday May 27, 2026
Besta deild karla er að spilast á áhugaverðan hátt en fátt virðist geta stöðvað Víkinga. Stjarnan veldur vonbrigðum og KR er með alvöru hreðjatak á Valsmönnum. Lengjudeildin er jöfn og spennandi og svo er mikið slúðrað í körfunni.

Tuesday May 26, 2026
Tuesday May 26, 2026
Arsenal Englandsmeistari en hvað gerist næst? Aron Pálmarsson á leið í þjálfarabransann og hver er framtíð Steraleikanna? Lifir Jökull af annað tap og mun Valur valta yfir KR í kvöld?
