Episodes

Wednesday Apr 22, 2026
Wednesday Apr 22, 2026
Liverpool-goðsögnin Robbie Fowler ræddi við Sýn Sport um stöðuna á félaginu, erfiða titilvörn, vandræði framherja liðsins og framtíð Arne Slot.

Wednesday Apr 22, 2026
Wednesday Apr 22, 2026
Stórkostleg byrjun á undanúrslitum Bónus-deildar karla og partíið heldur áfram í Grindavík í kvöld. Samúel Kári er óvænt kominn í Val og spurning hvernig Valsmenn fjármögnuðu það? Besta karla fer aftur á fullt í kvöld og því miður er leikið inni á Akranesi en grasið bíður í Keflavík. Svo getur Man. City komist á topp ensku úrvalsdeildarinnar.

Tuesday Apr 21, 2026
Tuesday Apr 21, 2026
Undanúrslitin í Bónus-deild karla hefjast í kvöld með fyrsta leik liðanna sem spiluðu til úrslita á síðustu leiktíð. Það er mikil pressa á Stólunum í einvíginu. Undanúrslitin í Bónus-deild kvenna eru komin vel af stað þar sem Haukar og Grindavík leiða. Svo ræðum við um ástand Laugardalsvallar og fréttina sem gerði Eyjamenn brjálaða.

Monday Apr 20, 2026
Monday Apr 20, 2026
Tískuyfirlýsing Stefáns Árna Pálssonar vakti mikla athygli í oddaleik Vals og Keflavíkur sem Valsmenn unnu með stæl. Grindavík er komið í blað í undanúrslitum kvenna og Glódís Perla sló leikjametið er Ísland spilaði við England í Laugardal. Svo var stórleikur ársins í enska boltanum í gær.

Friday Apr 17, 2026
Friday Apr 17, 2026
Besta sætið heilsaði á Bestu deildar föstudegi. Þá er stórleikur fram undan hjá kvennalandsliðinu og risahelgi í enska boltanum.
Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Sindri Sverrisson fóru yfir málin í Besta sætinu á dýrindis föstudegi þar sem heil umferð í Bestu deild karla fer fram. Bjór verður á 800 krónur í KR-heimilinu, Þórsarar ætla á Rauða ljónið og sérlega margir eru að mæta fyrrum félögum sínum, þar á meðal Gísli Eyjólfsson, Atli Sigurjónsson, Danijel Djuric og Adolf Daði Birgisson.
Arsenal og Manchester City mætast í stórleik helgarinnar á Englandi þar sem margir segja enska meistaratitilinn undir. Það liggur við að stórleikir Chelsea við Manchester United og Everton við Liverpool blikni í samanburði.
Þá er risa verkefni sem blasir við stelpunum okkar. Glódís Perla Viggósdóttir verður leikjahæst í sögunni þegar Ísland mætir Englandi á Laugardalsvelli á morgun.

Thursday Apr 16, 2026
Thursday Apr 16, 2026
Ægir Þór Steinarsson, lykilmaður í liði Stjörnunnar og landsliðsfyrirliði í körfubolta óttaðist að sínum ferli væri lokið eftir að hann meiddist í leik gegn KR í úrslitakeppninni. Úr myrkrinu hefur hann nú risið og ætlar sér að koma sterkari til baka.

Thursday Apr 16, 2026
Thursday Apr 16, 2026
Rándýrir miðar á leiki kvennalandsliðsins gætu verið ein ástæða lélegrar mætingar. Af hverju ekki að prófa að lækka verðið? Arsenal og Bayern áfram í Meistaradeildinni og spænsku liðin grenja út í eitt í fríinu. Oddaleikur í Vesturbænum í kvöld og annar á sunnudag vegna árshátíðar.

Wednesday Apr 15, 2026
Wednesday Apr 15, 2026
Uppgjör á leik Íslands og Úkraínu. Hörmungarmæting og hvað má gera betur? Ekki síst hvað getur KSÍ gert betur. Ótrúleg dramatík í Bónus-deildinni en ömurlegt að sjá meiðsli Ægis Þórs Steinarssonar. Liverpool og Barcelona kvöddu Barcelona og það er pressa á Arsenal í kvöld. Hafnarfjarðarliðin eru síðan að bjarga úrslitakeppni Olís-deildar karla.

Tuesday Apr 14, 2026
Tuesday Apr 14, 2026
Snorri Steinn og Arnór Atla þjálfa landslið karla í handbolta til 2032. FH og Haukar að bjarga úrslitakeppni Olís-deildar karla, KR og Grindavík geta fallið úr leik í Bónus-deild karla og stelpurnar okkar spila á Laugardalsvelli. Liverpool á líka krefjandi verkefni í Meistaradeildinni.

Monday Apr 13, 2026
Monday Apr 13, 2026
Helgaruppgjör. Sú Besta byrjaði með stæl, Rroy vann Masters, stelpurnar okkar í handboltanum eru komnar á stórmót enn á ný og svo spáð í spilin í Bónus kvenna og Olís karla í kvöld.
