Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

Friday Apr 10, 2026

Besta helgi ársins hingað til hefst á risaleik Víkings og Breiðabliks, dúndureinvígum í Bónus-deild karla, Hafnarfjarðarslag í handboltanum og Masters. Enska úrvalsdeildin rúllar aftur af stað og stelpurnar okkar geta tryggt sig inn á EM í handbolta.

Thursday Apr 09, 2026

Liverpool með hauskúpuleik, stelpurnar okkar magalentu í Færeyjum, sópurinn á lofti í Bónus kvenna og Heimir Guðjóns mætir FH í bikarnum.

Wednesday Apr 08, 2026

Það er hitað upp fyrir Bestu karla en spá þjálfara, fyrirliða og forráðamanna var birt í dag. Sitt sýnist hverjum um spána. Mikið líf í úrslitakeppninni í körfu, Meistaradeildin á fullu og Masters er að fara í gang.

Tuesday Apr 07, 2026

Allt á suðupunkti í Bónus-deild karla á meðan Valsmenn flengdu KA í handboltanum. KR-ingar líta vel út í fótboltanum og risaleikir í Meistaradeildinni í kvöld.

Rúnar gerir upp 20 ára feril

Thursday Apr 02, 2026

Thursday Apr 02, 2026

Rúnar Kárason tilkynnti í vikunni að leikmannaferli hans í handbolta sé lokið 38 ára að aldri. Hann verður þó áfram í handboltanum enda starfsmaður og þjálfari hjá Fram. Rúnar á langan og farsælan feril að baki þar sem hann lék um margra ára skeið með mörgum af bestu liðum Þýskalands, var öflugur í Danmörku og vann svo Íslandsmeistaratitla með bæði ÍBV og Fram hér heima auk þess að spila 100 landsleiki fyrir Ísland.
Valur Páll Eiríksson leit við á skrifstofu hans í Úlfarsárdalnum og ræddi við hann ákvörðunina um að hætta auk þess sem ferillinn var gerður upp á hundavaði.

Wednesday Apr 01, 2026

Tene-ferð Harðar Axels Vilhjálmssonar, þjálfara kvennaliðs Keflavíkur, er til umræðu í þætti dagsins og einnig er spáð í spilin fyrir úrslitakeppni Bónus-deildar karla sem hefst í kvöld. Ætlar HSÍ að láta Dani stela Arnóri Atlasyni af okkur og vonbrigði hjá fótboltalandsliðinu.

Tuesday Mar 31, 2026

Úrslitakeppni Bónus-deildar kvenna og Olís-deildar karla. Er Stjarnan að falla í handboltanum og kemur KV upp í körfunni? Bras á Tiger Woods og vangaveltur um landsleik Íslands og Haítí.

Monday Mar 30, 2026

Úrslitakeppnin í Bónus-deild kvenna hefst í kvöld og strákarnir byrja á miðvikudaginn. Mikið líf í úrslitakeppni Olís-deildar karla og Ísland spilar við Haíti á morgun.

Friday Mar 27, 2026

Sævar Atli Magnús­son, hefur ítrekað verið sleginn niður í jörðina eftir að hafa meiðst í leik með ís­lenska lands­liðinu í fót­bolta. Fjórum skurðað­gerðum síðar vonast hann til að nú birti til eftir að hafa upp­lifað hræðslu varðandi fram­haldið.

Besta sætið - 27. mars

Friday Mar 27, 2026

Friday Mar 27, 2026

Aðstoðarþjálfari sem er ekki þjálfari hjá kvennalandsliðinu, eftirlitsmaður á handboltaleik hrakti stuðningsmenn um stúkuna, lokahóf KKÍ og spáð í spilin fyrir úrslitakeppnina í Bónus-deild karla.

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125