Besta sætið

Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar. Þar er fjallað um allt sem skiptir máli í íþróttaheiminum.

Listen on:

  • Podbean App

Episodes

Besta sætið - 26. mars

Thursday Mar 26, 2026

Thursday Mar 26, 2026

Janus Daði til Barcelona, kvennalandsliðið fékk flottan fund og risakvöld í körfuboltanum og handboltanum hér heima.

Wednesday Mar 25, 2026

Loksins loksins er komið líf íþróttalífið eftir fremur lítt fréttnæma daga í upphafi vikunnar. Besta sætið færir ykkur stórar og miður skemmtilegar fréttir fyrir stuðningsmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta sem munu flestir lenda í vandræðum með að verða sér út um miða á Heimsmeistaramót næsta árs í Þýskalandi.

Besta sætið - 24. mars

Tuesday Mar 24, 2026

Tuesday Mar 24, 2026

Leikmaður gagnrýnir HSÍ fyrir mismunun í umfjöllun, áhugaverður bikardráttur í Mjólkurbikarnum og of mikill snjór á Akureyri.

Monday Mar 23, 2026

Það var nóg um að ræða í Besta sætinu á mánudegi eftir viðburðaríka helgi í sportinu. Úrslit Lengjubikars karla, Heimir Hallgríms og óvinur hans, sænska eplið sem olli okkur vandræðum og svo margar sögulínur eftir úrslit helgarinnar í enska boltanum, deild og deildarbikar. Aron Guðmundsson, Ingvi Þór Sæmundsson og Ágúst Orri Arnarson með ykkur í dag. 

Friday Mar 20, 2026

Besta sætið fór vel yfir þjálfaramál hjá KSÍ, landsleik gærkvöldsins, spennuna í Bónus deildinni og komandi helgi.
Valur Páll Eiríksson, Ágúst Orri Arnarson og Ingvi Þór Sæmundsson fóru yfir málin í þætti dagsins.
Kvennakvóti knattspyrnuþjálfara var til umræðu og því velt upp hvort KSÍ þyrfti að reka annan landsliðsþjálfaranna til að koma konu að. Þá var farið yfir landsleik Íslands við Svíþjóð, leiki gærkvöldsins í Bónus deild karla og spennuna þar.
Þá er nóg um að vera um helgina. Fylkir og KR mætast í úrslitaleik Lengjubikarsins, Arsenal og Manchester City í úrslitaleik enska deildabikarsins og spennandi leikir í ensku úrvalsdeildinni.

Besta sætið - 19. mars

Thursday Mar 19, 2026

Thursday Mar 19, 2026

Landsleikur gegn Svíum í kvöld, spenna í Bónus-deild karla og fjöldi Íslendinga á ferðinni í Evrópukeppnum í fótbolta.

Besta sætið - 18. mars

Wednesday Mar 18, 2026

Wednesday Mar 18, 2026

Orri Steinn Óskarsson er mættur aftur í landsliðið en mun fyrirliðinn spila leikina gegn Kanada og Haítí? Gylfi Þór Sigurðsson mun allavega gef sig allan í verkefnið. Albert Guðmundsson verður hins vegar í sprautumeðferð á Ítalíu.
Ísland á þrjá fulltrúa í marsfárinu mikla en kemur í ljós að Almar Atlason býr alls ekkert í Miami, borginni í Flórída. Hann býr í Miami, Ohio. Þetta reyndist þáttastjórnandanum mikið áfall.
Meistaradeildin býður svo upp á tvo mjög spennandi leiki í kvöld og tvo minna spennandi. Áhugavert verður samt að sjá hvort Harry Kane klæði sig í markmannshanskana og hvort Igor Tudor sæki einhvern úr unglingaliðinu til að setja í markið hjá Tottenham.
Þetta og margt fleira var til umræðu í Besta sætinu. Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins.

Tuesday Mar 17, 2026

Danijel Dejan Djuric hefur verið á meðal umtalaðri fótboltamanna landsins undanfarin ár. Hann vakti mikla athygli í framlínu Víkinga og vann með liðinu bæði Íslands- og bikarmeistaratitil áður en hann hélt utan í atvinnumennsku til Króatíu fyrir ári síðan.
Þrátt fyrir að hafa liðið vel í 25 gráðunum með sundlaug í garðinum vantaði eitthvað, þá sérlega spilatíma, og er Danijel nú snúinn heim. Orðið á götunni er að KA hafi greitt hátt í 18 milljónir króna fyrir kappann sem myndi gera hann að einum dýrasta leikmanni í sögu efstu deildar.
Hann hafi þá valið KA fram yfir uppeldisfélagið Breiðablik vegna þess að Norðanmenn hafi boðið svo háan samning að ekki annað hafi verið í stöðunni.
Valur Páll Eiríksson ræddi skiptin við Danijel, ástæðuna fyrir þeim og valið á KA við Danijel sem fór vel yfir sviðið.

Besta sætið - 17. mars

Tuesday Mar 17, 2026

Tuesday Mar 17, 2026

Eiga stelpurnar okkar séns á stórri endurkomu gegn Portúgal? Af hverju í ósköpunum er körfuboltinn að taka sér handboltann til fyrirmyndar og fara í milliriðlakeppni?
Grindavík er orðinn deildarmeistari og það gæti reynst risastórt fyrir Ármann. Á sama tíma sést enginn möguleiki á því að Valur verði Íslandsmeistari en KR gæti gert atlögu að titlinum.
Svo má búast við allavega einni góðri endurkomu í Meistaradeildinni í kvöld, spurningin er bara hvaðan hún kemur? Sporting á kannski mesta sénsinn, Chelsea á allavega ekki séns.
Ágúst Orri Arnarson, Stefán Árni Pálsson og Valur Páll Eiríksson sáu um þátt dagsins.

Besta sætið - 16.mars

Monday Mar 16, 2026

Monday Mar 16, 2026

Enski boltinn, KR pakkaði Stjörnunni saman og handboltalandsliðið spilar loks á heimavelli.

Copyright 2024 All rights reserved.

Podcast Powered By Podbean

Version: 20241125